Að ganga Á skóla

Margir ganga í skóla. Ég geng á skóla. Blush  Ég var að bera út Moggann í morgun eins og ég geri alla morgna nema sunnudags-. Ég var í Gilinu, á leið í íbúðirnar bak við Myndlistaskólann, með fangið fullt af blöðum strunsaði ég og horfði niður í götuna en ekki fram fyrir mig og gekk þá beint á hornið á klæðningunni á Myndlistaskólanum en klæðningin er í tæplega mannhæð og skagar dálítið fram fyrir sökkulinn á húsinu. Ég fékk myndarlegt gat á hausinn, sneri strax við í bílinn og keyrði beina leið upp á Slysó þar sem saumuð voru 5 spor í hausinn á mér.

Þetta virðist ekki hafa haft teljanleg áhrif á mína andlegu getu, ég veit ennþá hvað ég heiti og svoleiðis. Býst við að vera orðin jafngóð eftir fáeina daga.Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband