17.9.2008 | 10:31
Undarlegur tölvupóstur
Það mætti halda að ég hafi gengist undir stafræna kynskiptiaðgerð. Undanfarna daga hefur rignt inn í pósthólfið mitt tölvupóstsendingum með alls kyns gylliboðum um aldeilis gulltryggða stækkun og eflingu á ákveðnum líkamshluta sem ég hef ekki, hef aldrei haft og mun aldrei koma til með að hafa. Kannski þessir ofurduglegu hjálparkokkar ættu að kynna sér hvaða nöfn eru kvenkyns og hver karlkyns í þeim löndum sem þeir beina spjótum sínum að.
Athugasemdir
Ja flest er nú til, ég opna aldrey svona drasl post, fleigi honum um leið
Kristín Gunnarsdóttir, 19.9.2008 kl. 15:45
Huld S. Ringsted, 20.9.2008 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.